
|
Vín vínsins vegna
Hjá fyrirtækjum bjóðum við upp á létta síðdegis- eða kvöldkynningu fyrir starfsfólk þar sem fjallað er um og smakkaðar 4-8 mismunandi víntegundir
Dæmi um val á víni má sjá í þessu skjali
Í matarboðum mælum við með matseðli og vínum tengdum honum, bjóðum upp á kynningu á vínum yfir borðhaldi og/eða sérstakri vínsmökkun og vínkynningu fyrir matinn. Við förum yfir sögu vínsins og þess héraðs sem það kemur frá, segjum frá svipuðum vínum frá öðrum löndum og hvers vegna viðkomandi vín var valið með viðkomandi rétti
Þannig er hægt að njóta vínsins sérstaklega um leið og þess er að sjálfsögðu einnig notið til fullnustu með viðeigandi mat
© 2001, Cocktail veisluþjónusta
|