
|
|
Cocktail veisluþjónusta
Hjá Cocktail veisluþjónustu starfa auk Árna 3 matreiðslumeistarar, hver með sína sértæka þekkingu og reynslu og með samanlagða 80 ára starfsreynslu. Við útbúum matseðla sérstaklega fyrir hverja veislu og fyrir hvert tilefni sé þess óskað
Við sérhæfum okkur einkum í brúðkaupsveislum, fermingarveislum, jólahlaðborðum, þorrahlaðborðum og hvers kyns pinnaveislum og standandi móttökum. Þá mætum við með okkar 2ja fermetra grill svo til hvert á land sem er, sjá myndir úr grillveislu
Árni Þorsteinsson framreiðslumeistari og Cocktail veisluþjónusta bjóða einnig upp á alhliða veisluráðgjöf og vínkynningar
© 2001, Cocktail veisluþjónusta
Árni Þorsteinsson, framreiðslumeistari og stofnandi Cocktail veisluþjónustu, lærði framreiðslu á Veitingahúsinu Arnarhóli og lauk sveinsprófi frá Hótel- og veitingaskóla Íslands 1987. Hann hefur síðan starfað á fjölda veitingahúsa m.a. í Fjörunni í Hafnarfirði, á Hótel Borg, skemmtistaðnum Hollywood og á veitingahúsum með matseðlum frá Kína, Japan, Thailandi, Indónesíu, Víetnam, Kóreu, Singapore, Indlandi, Mexíkó, Argentínu, Ítalíu, Spáni, Portúgal, Frakklandi, Hawaii, Pólýnesíu, Bahama og New Orleans. Árni hefur auk þess rekið veisluþjónustu og veislusali í rúm 20 ár. Cocktail veisluþjónusta býður upp á spennandi matseðla frá þessum og fleiri löndum
cocktail.is - cocktail@cocktail.is