Púrtvín er eitt þeirra víntegunda sem ekki hefur fest rætur í íslenskri vínmenningu. Sumir smakka á því stöku sinnum og fá sér jafnvel ost með enda á það tvennt mjög vel saman. Eflaust gæti ég skrifað heila bók um púrtvín, farið yfir bresku áhrifin og framleiðsluhefðirnar en mig langar í þessum stutta pistli að segja ykkur frá því hvernig ég lærði að þekkja, meta og njóta púrtvíns og vona þannig að sem flestir hafi gagn af.
Púrtvín er stolt Portúgals. Það er í raun ótrúlegt að heimsækja Douro-dalinn í norðurhluta Portúgals og sjá þurran og leirkenndan jarðveginn. Vissulega er umhverfið fagurt en þegar horft er á ljósbrúnar hlíðarnar í allt að 40°C er frjósemi ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann. En það er með vínviðinn eins og mannfólkið, að þegar berjast þarf fyrir því að lifa af þá verður útkoman oftar en ekki góð.
Í öðrum pistli á þessari síðu sagði ég ykkur frá möndlulíkjör frá Algarve. Nú ætla ég aftur að höfða til þeirra sem leggja leið sína til Portúgals nánar tiltekið til Lissabon. Rétt ofan við miðbæinn er útibú frá hinu fræga Instituto do vinho do Porto, kallað Solar do vinho do Porto. Þar er hægt að setjast niður í loftkældum sal, í mjúka sófa eða við barinn. Hann er stór og mikill og í hillum hans eru eingöngu púrtvín. Á "vínlistanum" eru flestar þær tegundir sem til eru í landinu og þar eru verð bæði fyrir glas og flösku. Þannig er hægt að smakka nokkrar tegundir, velja þær bestu, kaupa nokkrar flöskur, þakka fyrir sig og fara aftur út í sólina.
 |
|
Púrtvín skiptist í nokkra megin flokka. Flestir þekkja Ruby. Mér þótti það best hér áður fyrr, enda er það ungt og milt og hentar því flestum. Ekki spillir fyrir hin rúbínrauða og skemmtilega áferð vínsins. Enn þann dag í dag tek ég oft Ruby fram yfir aðrar púrtvínstegundir á heitum sumardegi úti í garði m.a. vegna frískleika og verðs. Næst er það Tawny. Tawny hefur verið geymt lengur á eikarámum og er fölara á lit en Ruby, þau elstu eru brúnleit. Einfalt Tawny er 3-4 ára gamalt en síðan eru til sérmerkt vín sem eru 10, 20, 30 eða meira en 40 ára gömul. Þau verða bragðmeiri með aldrinum og þau elstu falla eflaust ekki öllum í smekk. Þessi vín eru öll blönduð. 10 ára vín er ekki endilega 10 ára heldur vín nokkurra árganga sem hefur svipaða áferð og 10 ára gamallt vín. Þið sem viljið læra að meta góð púrtvín, leggið Ruby aðeins á hilluna og ungt Tawny sömuleiðis. Smakkið þess í stað á 10 og 20 ára vínum. Takið þau fram á kvöldin og borðið milda osta með, alls ekki gráðosta því þeir yfirgnæfa vínið. Ég mæli heldur ekki með að ávextir séu borðaðir með víninu þó að sumum kunni að þykja það góð blanda. Ávextirnir draga úr gæðum vínsins.
Þeir sem eru með þessu að gera nýja uppgötvun í vínmenningu ættu að halda lengra og huga að árgangsvínunum. Þau skiptast í þrennt: Dated Ports, L.B.V. (Late bottled vintage) og Vintage. Vintage vínin eru einstök og hver framleiðandi nær oft ekki nema tveimur eða þremur Vintage vínum á tíu ára tímabili. Þau eru látin vera 2-3 ár á eikarámum þannig að þau standa flesta sína lífdaga á flöskum. Þannig minna þau dálítið á Ruby í útliti en hafa þó mun dýpri blæ, allt að því fjólubláan. L.B.V. eru látin vera 4-6 ár á ámum en Dated Ports í minnst 7 ár. L.B.V. eru ekki mjög algeng en spennandi vín engu að síður, bragðmikil og allt að því hrjúf. Flestum líkar betur við Vintage vínin og eru þau óumdeilanlega langbestu púrtvínin. Með þeim er óhætt að færa sig yfir í bragðmeiri osta s.s. hvers kyns mygluosta og beinlínis mælt með því.
Mig langar að benda áhugasömum á að smakka sig áfram, fá sér púrtvín við hin ýmsu tilefni og skoða heimasíðu Instituto do vinho do Porto. Varðandi heimsókn í Porto Solar í Lissabon þá er best að taka lest að Restauradores-stöðinni í hjarta borgarinnar en þaðan eru tvær leiðir upp á klöppina. Sú fallegri er með Glória-lyftunni sem sjálfur Eiffel teiknaði en það fer líka sporvagn upp bratta hlíðina og staðnæmist hann rétt fyrir framan Porto Solar. Þar er opið frá mánudegi til laugardags frá kl. 14:00 til miðnættis. Enginn sem á annað borð leggur leið sína til Lissabon ætti að láta fram hjá sér fara að skoða borgina frá klettinum, koma við í kirkjurústunum við lyftuna og smakka púrtvín í Porto Solar.