Einu sinni fyrir mörgum öldum síðan þegar Márar réðu yfir Miðjarðarhafinu var Márafursti einn í suðurhluta Portúgals sem sótti sér prinsessu frá Norður-Evrópu og giftist henni. En prinsessan veiktist af heimþrá og lagðist í rúmið. Furstinn sá sér þá leik á borði og sótti möndlutré og gróðursetti um gjörvalt ríki sitt. Einn febrúarmorgun þegar prinsessan vaknaði og leit út sá hún hvít möndlublómin hvert sem hún leit líkt og jörðin væri þakin þykku lagi af snjó. Hún tók þá hamingju sína á ný og þau lifðu... jæja, þið þekkið framhaldið.
Möndlutrén í Algarve
 |
| möndlublóm |
Enn þann dag í dag má snemma á vorin sjá "snævi" þakta jörð af möndlutrjám á 150 km. svæði á vesturhluta Algarve. Algarvebúar eru stoltir af þessari óvenjulegu litadýrð innan um annars rauðbirkið landslagið. Ef þið hyggið á ferð til Algarve í sumar, látið þá ekki fram hjá ykkur fara hinn ljúffenga möndlulíkjör sem Algarvebúar eru þekktir fyrir en flytja því miður út í mjög litlum mæli. Meira að segja í Lissabon er þessi einstaki líkjör ekki fáanlegur í öllum vínbúðum.
Möndlulíkjör eða Licor de Amêndoa er frekar ljós á lit, vel þykkur og hefur gott, sætt eftirbragð sem situr eftir um allan munninn.
Blanda af Amaretto og Bailey´s
Ef ég ætti að reyna að líkja bragðinu og tilfinningunni við að dreypa á þessum ljúfa drykk þá dettur mér helst í hug blanda af Amaretto og Bailey´s. Hann hefur hnetukeiminn frá Amaretto en mýktina og hið ljúfa eftirbragð sem Bailey´s er löngu þekktur fyrir.
Licor de Amêndoa er ekki vörumerki heldur tegund og því til frá mörgum framleiðendum og fæst í öllum "Marrachino"-matvörumörkuðum og "mini-mercados" á Algarve. Sjálfum þykir mér þeir hver öðrum betri en ég læt hvert ykkar um að meta það sjálf. Flestir framleiðendur setja vöru sína á háar mjóar flöskur sem eru hrímaðar líkt og glas sem staðið hefur í frystiskáp. Þetta eru fallegar flöskur sem skapa forvitni og kítla bragðlauka verðandi neytanda. Þó eru til fleiri útgáfur sem eru dekkri og líkjast frekar öðrum hnetulíkjörum sem við þekkjum hér á landi.
Dæmi um það má finna á þessari slóð en því miður tókst mér ekki að finna neinar myndir af hinum hefðbundna eðaldrykk. Eins og þið sáuð sem smelltuð á slóðina er þetta ekki dýr vara, kostar 5 Evrur sem eru um 420 íslenskar krónur (mars 2003).
Heimatilbúinn möndlulíkjör
Þið sem heima sitjið í sumar en eruð orðin þyrst af þessari umfjöllun ættuð kannski að prófa þessa uppskrift sem ég fékk frá gamalli konu í Silves sem á tímum Máranna var höfuðborg Algarve.
Notið hálfa flösku af víni s.s. Madeiravíni eða ungu Púrtvíni (Tawny eða jafnvel Ruby, allt eftir smekk),
1/2 kg af sykri,
1 bolla af rauðvíni (notið ungt og létt vín),
1 bolla af vatni,
1 msk. vanilludropa og
1 glas af möndlu-essens sem fæst m.a. í Ámunni.
Setjið þetta allt í mixer, blandið og setjið á flöskur. Leyfið drykknum að jafna sig í nokkrar vikur og njótið svo. Auðvitað má prófa sig áfram með þessa uppskrift svo sem að nota aðeins hærra hlutfall víns, Sherrý í stað Madeira, hvítvín eða rósavín í stað rauðvíns eða möndludropa ef ekki fæst essens.
Ég læt þetta duga í bili og óska ykkur góðrar ferðar sem eruð í sumar á leið til Norður-Arabíu sem Suður-Portúgal ætti í raun að heita. Njótið ferðarinnar og alls þess sem Márarnir skildu eftir af stórbrotinni menningu sinni.