|
Dagbók Antons og Eyglóar
Viltu senda okkur póst?
08.08.05.
Þar sem hann Anton er alveg að drukkna í vinnu þessa dagana til að vinna upp brúðkaupsferðina, sé ég mig tilneydda til að skrifa nokkrar línur um steggjunina:)
Strákarnir komu sem sagt hingað heim þann 25.júlí síðastliðinn. Það var á mánudegi því Anton er að vinna allar helgar fram að brúðkaupi. Hann kom þreyttur heim af næturvakt og lagði sig. Svo rak ég hann á fætur, og í sturtu. Á meðan Anton var í sturtunni, komu strákarnir upp og biðu hans inni í stofu og tóku auðvitað vel á móti honum þegar hann kom fram.
Eftir að hafa setið hér í svolitla stund, kom mini-rúta og sótti þá og þeir fóru beint í Paintball. Eftir að hafa tekið nokkra leiki, var Anton dressaður upp í hvítan og bleikan kanínubúning (sjá "Myndir") og látinn hlaupa fram og til baka yfir völlinn. Þá máttu sem sagt allir hinir skjóta á hann eins og þá lysti- ein kúlan fór meira að segja undir grímuna og upp í Anton svo hann fékk að smakka hvernig paintballkúlur bragðast..að hans sögn smakkaðist hún ekki vel!
Eftir paintball var farið heim til eins félagans og slappað aðeins af áður en rölt var niður í bæ. Á Laugaveginum var Anton látinn labba með gítar og bjóða gangandi vegfarendum óskalög. Þetta voru upp til hópa útlendingar sem tóku uppákomunni mjög vel, og sumir borguðu honum í hnetum eða kossi á kinnina ;). Anton söng líka smá í Máli og Menningu en fólkið þar kunni ekki að meta söngfuglinn svo hópurinn þurfti frá að hverfa. Eftir sönguppákomuna og smá stopp í heimahúsi, fóru þeir svo út að borða á Tapas barnum og fengu góðan mat að Antons sögn. Eftir að hafa borðað, fóru þeir svo aðeins á djammið og svo kom hann heim, bara sáttur við daginn :)
Af undirbúningi er svo það að frétta að þetta er allt að smella, vonandi ! Ég er á fullu við að klára eitt og annað og þetta mun alveg hafast, við höfum líka svo marga sem eru að gera allt til að hjálpa okkur :) Við erum einstaklega heppin með fjölskyldur! :)
Segjum þetta gott í bili.
Kveðja, Eygló
04.08.05.
Myndir úr steggja- og gæsapartýi eru komnar upp.
03.08.05.
Hér er allt á fullu í undirbúningi, lokamátunin var í dag hjá okkur báðum en við fórum að sjálfsögðu í sitt hvoru lagi. Kalli (faðir
brúðguma) er búinn að máta íslenska búninginn og sömuleiðis Ísak- þeir verða flottir saman, sá stutti og afarnir tveir í stíl! Ég fór í dag að ná í glösin úr áletrun en glasið mitt var vitlaust- svo fyrirtækið þarf að kaupa nýtt glas í búðinni sem hitt er úr og skrifa aftur. Það stóð Eygló IÐA en ekki Eygló Ida. Samt bara pínu fyndið, ég hef svo oft lent í þessu og þetta reddast alltaf.
Við erum búin að funda með veislustjóra og líst bara dúndur vel á þetta allt saman. Næst á dagskrá er svo að kíkja á salinn með veisluþjónustu, veislustjóra og yfir-skreytingakonu;) Já þetta er allt að smella og verður örugglega bara hið glæsilegasta brúðkaup.
Við keyptum 20 einnota myndavélar í dag í Hagkaup..mér fannst það alveg sprenghlægilegt en afgreislustúlkunni fannst það ekki eins fyndið ;)
Segjum þetta gott í bili, verð að þjóta.
Kveðja, Eygló
02.08.05.
Myndir úr gæsapartýinu eru komnar upp.
20.07.05.
Eva Rún vinkona ætlaði að koma í heimsókn og við ætluðum að fara saman á búðarrölt.
Hún hringdi í mig rétt fyrir tvö, sagðist vera búin að vinna klukkan 14 og hvort ég yrði ekki bara tilbúin. Ég bara jújú, ekkert mál. Hún er samt sú óstundvísasta í heimi svo ég var alveg últra róleg. Anton rak mig í sturtu og svona,sem betur fer...en ekki grunaði hana Eygló neitt;) hehe. Auðvitað small allt saman eftir að ég fattaði þetta, en mig grunaði ekkert áður, ferlega gaman:)
Svo hringir bjallan og ég hleypi henni upp og fór út í dyr..svo kemur hún labbandi upp stigann....og eftir smá stund 8 gellur í viðbót á eftir henni! Ég sprakk úr hlátri og öskraði bara "oh my God" eins og versta gelgja! hehe.
Nú ok, ég fékk 10 mínútur til að henda sparifötum, svörtum ruslapoka (ruslapokinn var bara til að hræða mig, var ekki notaður) og sundfötum ofan í tösku og svo var haldið af stað.
Ég fékk grænt slör og borða sem á stóð "gæs Íslands 2005" á..hehe. Og svo keyrðum við af stað og enduðum í magadanshúsinu;) Ég fékk svaka búning hjá kennaranum en hinar voru bara með belti. Ég þurfti að dansa fremst og svo í lokin var dansað í hring og ég fór inn í hringinn og dansaði þar..sem var alveg ok því ég þekki þær allar svo vel að þetta var bara fyndið..híhí:) Svo fékk ég disk með tónlistinni og áfram var haldið.
Næst fórum við í smá "pik-nik" heim til einnar, það var lautarkarfa og læti, teppi og allt..hehe. Fengum okkur sem sagt osta og kex og eplasnafs..fannst snafsinn reyndar ógeð en lét mig hafa það..hehe.
Þegar þetta var búið fórum við á Hótel Lofleiði þar sem ég var send niður í létt nudd og svo fór ég í sundföt og fór ofan í heitan pott þar sem þær biðu allar eftir mér. Þá skáluðum við í freyðivíni og höfðum það fínt:) Þar fékk ég líka afhentan verkefnalista með mis-erfiðum verkefnum sem ég þó leysti, öll nema tvö:) þær voru reyndar mjög hissa á því að ég hefði þorað það..híhí:)
Þegar ég kom úr sturtu var búið að hengja bleikan ömmunáttkjól í skápinn minn og ég fór í hann..agalega smart alveg.. og fyrir utan hótel Lofleiði fékk ég svo risa (og ekta!) medalíu með mynd af gæs og aftan á henni stóð Gæs Íslands 2005. Eftir smá bið kom risastór limmósína og þær sögðu mér að húkka far..sem ég gerði:) og hún stoppaði náttúrulega svo við fórum á rúntinn.. með opna glugga og rosa tónlist:) Ég átti sem sagt að vinka öllum og senda fingurkoss og svona og gerði það samviskusamlega. Útlendingarnir tóku vel í það en flestir Íslendingarnir voru ekki að fíla það ;)
Eftir smá rúnt í limmunni fórum við á Rossopomodoro og borðuðum margréttaða máltíð. Þjónninn þar var alveg brill, og var með þvílíkan klámkjaft sem var samt alveg fyndið;) Þegar við vorum búnar að borða fékk ég risastórt tippabrauð sem hann ákvað bara að mig langaði í, stelpurnar voru ekkert búnar að plana það;) Ég hafði reyndar ekki lyst á því, pósaði bara með því og reif það svo í sundur..híhíhí. Áður en við fórum, gekk ég upp að einum strák, bað um númerið hans, labbaði pínu í burtu, hringdi í hann og vinkaði til hans og brosti á meðan ég talaði við hann:) þetta voru sem sagt 3 hlutar verkefnalistans góða ;)
Svo fórum við aftur heim til Tinnu Lindar vinkonu (og verðandi veislustjóra) og slöppuðum aðeins af svoooooooo kom það eftirminnilegasta frá kvöldinu.. ég hélt við værum að fara að djamma en nei nei.. við stoppum fyrir utan íbúðarhús og ég sagði strax: "þetta er ekki djammið!" vissi náttúrulega alveg að það átti að gera eitthvað við mig ;). Við göngum inn og þar er fuuuuuuuuullllt af fólki, m.a leikarapakki. Tinna mín, sem er í leiklistarskólanum segir hátt og snjallt :"magadansmærin er komin!" og svo tóku þær af mér diskinn sem ég fékk fyrr um daginn, skelltu honum í græjurnar og svo fóru allir að klappa. Það var annað hvort að hrökkva eða stökkva..og ég bara stökk...dansaði magadans eins og asni og hneigði mig svo á eftir:) ætlaði ekki að gera þeim það til geðs að guggna á þessu. Þær pissuðu næstum á sig af hlátri..hehe. Eftir að ég kom út komst ég að því að meðlimir Íslenska dansflokksins voru þarna líka!!!!! aarrrggg....bara neyðarlegt!!!! hahahahaha (og svo sögðu þær mér voða pent að einn þeirra var með videocameruna á lofti!).
Eftir þetta fórum við á Ölver þar sem ég söng "It´s my party" og fékk svo smá innkaupakerrurúnt fyrir utan ;) (það var reyndar ekki partur af prógramminu).
Svo enduðum við á Nasa á Skítamóralsballi en fórum fljótt að týnast heim þaðan og ég var komin heim klukkan 3:30.
Þetta var ÆÐISLEGA GAMAN !!! :)
Vona að ég sé ekki að gleyma einhverju skemmtilegu:)
Kv.Eygló- gæs Íslands 2005 ;) hehe"
06.07.05.
Jæja, þá er gjafalistinn loksins kominn á hreint. Við þræddum nokkrar búðir og duttum svo niður á það sem við vildum en komumst reyndar að því að við, þetta einfalda, látlausa og rólega fólk, erum með ansi hreint dýran smekk!!!
28.06.05.
Halló allir
Við erum búin að vera löt að skrifa hér og það er svo sem engin afsökun fyrir því. Bara gott veður og mikið verið að vinna. En nú eru öll boðskort farin út og ég meira að segja hef sannanir fyrir því að alla vega eitt þeirra barst til Horsens í Danmörku í dag svo flestir ættu að vera búnir að fá sín! Að vísu bárum við rosalega mörg út á fimmtudaginn en hættum eftir rúma 3 tíma þegar litli stubburinn var orðinn svangur og þreyttur. Við gátum ekki hugsað okkur að setja öll kortin í póst því við höfðum áhyggjur af því að þau dyttu í sundur á leiðinni. Enda tók 12 tíma að búa kortin til..við sátum 6 saman og föndruðum..og þvílíkt og annað eins föndur!! Það sem tók mestan tíma var að líma örsmáar perlur á hjörtu með tannstöngli..72 perlur á 80 hjörtu, þakka pent. Mér væri sama þó ég sæi aldrei svona perlur aftur en mikið hroðalega er maður stoltur samt því þau eru auðvitað ferlega flott og það segja það allir:)
Við erum bara nokkuð róleg enn þá þó það séu komin smá fiðrildi í magann eins og eðlilegt er. Tónlistarfólkið okkar búið að fá lögin í hendurnar og svona svo þetta er allt að koma. Anton stefnir á það að fara að skella sér á leiguna að máta föt og svo förum við með Ísak Aron bara þegar nær dregur, hann stækkar svo hratt þessa dagana. Sumir hafa verið að spyrja um gjafalista..þeir fara alveg að koma ;)
Hér er sem sagt allt í góðu..þarf bara að vinna í því að skipta út myndinni á þessari síðu..hún er nú alveg ferleg! Við getum nú myndast örlítið betur en þetta!!
Kv.Eygló og Anton
01.06.05.
Í dag fór ég með mömmu í föndurbúðir út um allan bæ til að kaupa allt sem þarf í kortaföndrið. Þetta verður heljarinnar verk en þá er gott að eiga góða að. Á sunnudaginn á að leggjast í föndur og verða allar konur í ættinni, sem vettlingi geta valdið, mættar á staðinn til að föndra. Karlmennirnir hafa takmarkaðan áhuga á föndurvinnunni en þeir fá bara önnur verkefni! Það er allt komið á fullt hjá okkur, erum búin að redda kökudisk og voða flottum boga sem verður skreyttur og stillt upp við háborðið. Þetta smá mjakast og ég verð að viðurkenna það að það er kominn smá fiðringur í magann. Lögin komin á hreint og frábæru vinkonur mínar komnar í gírinn; nú fara að hefjast söngæfingar hjá þeim því þær vilja hafa þetta fullkomið. Og ég veit að þetta verður allt alveg frábært.
31.05.05.
Síðan okkar er komin upp. Hér munum við rekja það sem á daga okkar drífur fram að Brúðkaupinu og næstu vikur á eftir.
© 2005, Cocktail veisluþjónusta |