Til að setja saman góðan bar heima er ekki nóg að eiga fullt af víni. Lykillinn er reyndar frekar sá að eiga réttu vínin en ekki endilega allt of margar tegundir þó það skemmi reyndar sjaldan fyrir öðru en buddunni. Hins vegar eru nokkur atriði sem verða að vera til áður en við förum að fylla húsið af áfengi.Barinn sjálfur:
Cocktailhristari
Cocktailhrærari - má nota hálfs líters glas
Strainer - til að sigta drykkinn úr hræriglasinu
Sjússamælir - eða annað cl mælimál
Barskeið - nokkurs konar teskeið með löngu snúningsskafti
Plastbretti
Hnífur - þarf að vera sög
Grenadine
Strásykur
Flórsykur
Púðursykur
Sykurmolar
Salt
Pipar
Tabasco
Worchestershiresósa
Kaffi
Sogrör
Servíettur
Tannstönglar/cocktailspjót
Upptakarar - fyrir gos og vín
Klaki
Glös - whisky, cognac, líkjör, long-drink, cocktail, léttvín (hvítt, rautt, freyðivín, sherrý/púrtvín), bjór...
Ísskápurinn:
Sítróna
Lime
Appelsína
Ávextir - s.s. ananas, hunangsmelóna, kiwi, jarðarber...
Cocktailber
Cocktaillaukur
Ólívur
Rjómi
Egg
Eplasafi
Appelsínusafi
Ananassafi
Tilbúinn sítrónusafi - blandið sítrónusafa við vatn og flórsykur
Tómatsafi
Cola
Sprite/7-up
Ginger-ale
Tonic
Grape
Sódavatn
Þá er komið að því sem mestu máli skiptir, sjálfu víninu. Hægt er að setja upp bar heima sem kostar allt frá kr. 20.000,- og upp úr öllu valdi. Ég held að flestir ættu að geta gert ansi margt gott fyrir kr. 30.000,- til 60.000,-. Það er engin ein samsetning sem er rétt og þó að ég segji hér að neðan að sumum tegundum megi sleppa þá er það fyrst og fremst minn smekkur annars vegar og reynsla mín af því hvað er vinsælt hins vegar. Varðandi líkjöra þá vandast valið. Ég set hér að neðan upp mjög einfalda beinagrind sem ég vona að menn geti nýtt sér. Ef einhverjar spurningar vakna þá sendið mér endilega fyrirspurn með því að smella á græna síðuhausinn.
Barinn (tegundum í sviga má sleppa):
Vodka
Gin
(Ljóst romm)
Dökkt romm
(Tequila)
Campari
Púrtvín (t.d. 1 ruby og 1 tawny)
Sherrý (a.m.k. sætt, má líka vera þurrt)
Whisky (skoskt, má líka vera 12 ára, bourbon, rúgwhiskey og írskt whiskey)
Cognac (VSOP eða Napoleon er ljómandi gott, VS í lagi og XO er frábært)
Þurr vermouth
Sætur vermouth
(Gammel dansk)
(Jägermeister)
Veljum svo nokkra þekkta líkjöra (eða sambærilega):
Bailey's
Cointreau
(DOM benedictine)
(Drambuie)
(Galliano)
Grand-marnier
(Malibu)
(Southern Comfort)
Ýmsir ávaxta- og jurtalíkjörar eftir smekk (banana, ferskju, curacao (blár), apríkósu, kirsuberja, vanillu, piparmyntu, kakó og kaffi (s.s. Tia maria eða Kahlúa).
Mæli ég helst með curacao, piparmyntu og kaffi auk eins ávaxta).
Bjór
Hvítvín
Rauðvín
Freyðivín
Eins og áður sagði þá fer val á líkjörum eftir smekk fyrir blönduðum drykkjum og líkjörunum sjálfum. Líkjörarnir í svigum eru ekki endilega síðri en hver og einn verður að velja sinn bar eftir smekk og eftir því sem buddan leyfir. Ákveðnar tegundir eru "nauðsynlegri" en aðrar í þessu samhengi, sérstaklega þegar cocktailar eru annars vegar.
Gangi ykkur vel við uppsetningu á ykkar eigin bar.